Pönnukökur Skriv ut oppskriften

250 g hveiti
1 tsk lyftiduft
½ tsk sódaduft
½ tsk salt
6-7 dl mjólk
25-50 g smjörlíki
2 egg


Hveitið er sáldrað með lyftidufti, sódadufti og salti. Vætt í með mjólkinni. Smjörlíkið brætt og kælt. Blandað saman við ásamt þeyttum eggjunum og dropum, ef vill. Pönnukökurnar fá fallegri lit, ef vætt er í með 1 dl af köldu kaffi eða maltöli og er þá mjólkin minnkuð. Bakað á pönnukökupönnu við góðan hita.
Bornar fram með berjamauki og rjóma, ávöxtum og rjóma eða rjómaís. Einnig er ágætt að vefja þær upp með sykri eða bera síróp með þeim.

Matur og drykkur, Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum Máls og Menningar.
Du finner denne oppskriften igjen på: http://tradisjoner.no/oppskrift917.html