| Kleinur I | |
½ kg hveiti
2 tsk lyftiduft 1 ¼ tsk hjartarsalt ½ - tsk kardimommur 75 g smjörlíki 125 sykur 1 egg 2 dl mjólk (súr) Hveitinu sáldrað með lyftiefnunum og kardimommum. Smjörlíkið mulið, sykurinn látinn saman við, vætt með eggi og mjólk. Hnoðað. Skipt í þrennt, flatt út fremur þykkt. Skorið í 4 sm breiðar lengjur og á ská í 7 sm langa bita. Á miðju hvers bita er gerð rifa og kleinunni snúið við. Raðað á bakka. Fitan er heit þegar sýður í kring um eldspítu. Steiktar móbrúnar á báðum hliðum. Færðar upp á pappír, sem sýgur í sig fitu. Látnar kólna og geymdar í lokuðu íláti. Ath. Súrmjólk er ágæt í kleinur. Matur og drykkur, Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991 Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum Máls og Menningar. |
|
| Du finner denne oppskriften igjen på: http://tradisjoner.no/oppskrift912.html |
|