| Lundar, steiktir | |
4 lundar
40 g reykt flesk Salt 50 g smjörlíki 5-6 dl mjólkurbland Sósan: 30 g mjörlíki 4 msk hveiti 4-5 dl soð Salt og pipar Sósulitur Oftast eru lundarnir hamflettir, annars verður að svíða þá vandlega, þegar búið er að plokka þá. Lundarnir eru hreinsaðir vel og þvegnir úr köldu vatni, þerraðir at utan og innan, og nuddaðir með salti. Ef hryggur og læri eru höfð með, eru þeir bundnir upp. Fleskræmum er stungið inn í bringuna. Brúnaðir móbrúnir á öllum hliðum og raðað þétt saman í pott. Heitu mjólkurblandi hellt yfir og soðið í 1-2 klst. við hægan hita. Snúið við öðru hvoru. Teknir upp og hadið heitum. Sósan: Smjörlíkið er hitað, hveiti hrært út í, þynt með soðinu síuðu. Sósulitur og krydd látið í eftir bragði. Gott er að láta ribsberjahlaup og þeyttan rjóma í sósuna. Soðnar og brúnaðar kartöflur og soðið grænmeti er borið með. Einnig rabarbari í bitum og grænt salat með rjóma. Matur og drykkur, Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991 Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum Máls og Menningar. |
|
| Du finner denne oppskriften igjen på: http://tradisjoner.no/oppskrift878.html |
|