Rabarberkaka nr. 2 Skriv ut oppskriften

1 pd. rifið rúgbrau eða franskbrauð,
2 pd. rabarberleggir,
50 kv. smjör,
1 pd. sykur.


Með rabarber leggina skal fara eins og í rabarberköku nr. 1. Brauðið er sigtað á gatasigti og bakað í smjörinu þannig: Smjörið er brætt og brauðinu sáldað í og stöðugt hrært vel í, svo eru 30 kv. af sykri látin í, og þetta síðan bakað hér um bil 15 mín; þá er það tekið af eldinum og hrært í því, meðan það er að kólna, svo það fari ekki í kekki. Þá er 1/3 af þessari brauðmylsnu látinn í smurt mót, þar ofan á er látinn helmingurinn af rabarberleggjunum, þar næst brauð, svo leggir og seinast það sem eftir er af brauðmylsnunni. Þá er það jafnað vel ofan, og kakan bökuð 1 tíma. Líka má búa til þetta köku án þess að baka brauðið í smjörinu og sykrinum og þá er raðað í mótið eins og í rabarberköku nr. 1.

(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
Du finner denne oppskriften igjen på: http://tradisjoner.no/oppskrift459.html