| Að þurrka hvannarblöð og steinselju | |
Blöðin eru tínd og slitin frá leggjunum, hellt svo á þau sjóðandi vatni og hrært í því, svo er þessu hellt á sigti og vatnið látið renna frá. Pappír er látinn í ofnskúfuna, blöðin breidd á hann, og skúffan látin í ofninn, en hann má ekki vera mjög heitur. Þegar blöðin eru þurr, má láta þau í flöskur eða troða þeim niður í kassa og setja pressu á þau. Þegar á að brúka þau, skal hella á þau heitu vatni og láta það standi á þeim litla stund.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999) |
|
| Du finner denne oppskriften igjen på: http://tradisjoner.no/oppskrift438.html |
|