Slöngukaka (svissrolle) Skriv ut oppskriften

125 gr. smjör
125 gr. sykur
175 gr. hveiti
200-250 gr. egg
500 gr. berjamauk
2 teskeiðar lyftiduft (ger-)


Hveitinu og lyftiduftinu er blandað vel saman. Smjörið er linað og hrært með sykrinum, þar til það er orðið að þéttri froðu. Þá eru eggin hrærð, eitt og eitt í senn, og hveitið smám saman með, þar til það er hvort tveggja búið. Það þarf að hræra deigið vel. Þá er tekinn vel hreinn pappír, sniðinn eftir ofnplötunni og smurður með smjöri svo vel, að ekki sé neins staðar blettur eftir. Deigið er svo látið á pappírinn, þannig að því sé alls staðar smurt jafnt á plötuna og kakan bökuð ljósbrún. Þarf að snúa plötunni við svo að kakan bakist jafnt við góðan hita. Þegar kakan er bökuð, er henni hvolft á pappír og pappírinn, sem kakan var bökuð á, tekinn af og berjamaukið borið á þeim megið yfir alla kökuna og hún svo vafinn saman frá öðrum endanum eins og slagvefja (rúllupylsa). Það má hjálpa til með pappírnum, ef hún vill detta í sundur. Það þarf að hafa berjamaukið dálítið heitt, svo að fljótlegra sé að smyrja því á og vefja kökuna saman meðan hún er heit, því að kólni hún of mikið, brotnar hún og er þá ekki hægt að vefja hana upp. Sé platan lítil, þá þarf að skipta deiginu. Slöngukakan er skorin sundur köld í hæfilega þykkar sneiðar. Best er að hafa í hana jarðaberjamauk, en vel má hafa sveskju- eða tröllasúrumauk (rabarbara). Kökusneiðarnar eru smurðar með sykurbráð, en ekki þykkara en svo, að randirnar sjáist í gegnum sykurbráðina.

(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
Du finner denne oppskriften igjen på: http://tradisjoner.no/oppskrift403.html