| Pönnukökur I | |
50 kv. hveiti
10 kv. sykur 10 kv. kúrennur 2-3 egg 1 pt. Nýmjólk 1/2 kardimommur 10 kv. smjör Smjörið, sykurinn, kardimommurnar og eggin skal hræra, þar næst hveitið og mjólkina, þagnað til jafningur þessi er orðinn seigur, þá skal láta kúrennurnar út í. Pönnuna skal hita og bera á hana smjör (í líni), þá er einni sleif af deigi rennt yfir pönnuna; þegar neðri hliðin er bökuð skal snúa kökunni við. Þegar hún er bökuð báðum megin, skal láta hana á disk og halda svo áfram með deigið þar til allt er búið. Þegar pönnukökur eru framleiddar, eru þær ýmist vafðar upp eða brotnar saman og stráð á þær sykri. Líka má láta innan í þær þeyttan rjóma. (Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999) |
|
| Du finner denne oppskriften igjen på: http://tradisjoner.no/oppskrift398.html |
|