1 l slökkt kalk
15 l vatn
25 – 30 vambir
Kalkinu er blandað í volgt vatn, vambirnar látnar ofan í og hrært í annað slagið. Venjulega er laust á vömbunum eftir 10-15 mín., og eru þær þá stroknar, þangað til þær eru vel hvítar. Kalkið er strokið vel af þeim, þær lagðar í kalt vatn. Vélindið skal rist, eigi að hirða það. Vinstrarnar eru lagðar í kalkvatnið, sem áður var þynnt. Mega liggja augnablik niðri í, skafnar á bretti með borðhníf. Sé kalk ekki til, má stinga vömbunum í heitt vatn og síðan kalt og skafa þær á bretti jafnóðum, þar til allt er farið af þeim. Vinstrarnar má leggja í volgt sódavatn og skafa þær síðan. Nú eru vambirnar þvegnar vel úr köldu vatni, þeim snúið við og óhreinindin reytt af þeim. Síðan eru þær svo þvegnar úr 2-3 volgum vötnum og að endingu lagðar í kalt vatn. Bíði vambirnar yfir nóttina, skulu þær geymdar á köldum stað. Þá eru vambirnar sniðnar, og 4-6 keppir skulu vera úr hverri vömb. Séu langar, skulu þeir hreinsaðir á sama hátt og vinstrarnar. Allur mör, sem er utan á vömbunum og vinstrunum, er bræddur og notaður í sápu.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.