10 þorskkinnar
Eggjahvíta og brauðmylsna
Salt og pipar
100-200 g smjörlíki
Kinnarnar skornar frá hausbeininu, hreinsaðar vel og þerraðar. Velt upp úr eggjahvítu og brauðmylsnu og steiktar móbrúnar í smjörinu. Salti og pipar stráð yfir þær. Borðaðar með heitum kartöflum. Á sama hátt má steikja kinnarnar á fati eða í skúfu inni í heitum ofni.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.