1/2 kg hrossakjöt eða folaldakjöt
40 g smjörlíki eða jurtaolía
1 msk hveiti
2 laukar
1/2 l vatn
1 tsk salt
1/4 tsk pipar
1 msk hveiti
1 dl kalt vatn
Sósulitur
Kartöflur
Bezt er kjöt úr læri eða bógi. Skorið í sneiðar þvert á vöðvann og barið með kjöthamri. Laukurinn er flysjaður og skorinn í sneiðar. Hveiti, salti og pipar blandað saman. Feitin er brúnuð á pönnunni. Buffinu snúið upp úr hveitiblöndunni og brúnað móbrúnt á báðum hliðum. Látið í pott. Þá er laukurinn einnig brúnaður. Heitu vatni er hellt á pönnuna. Þegar sýður, er því hellt á kjötið. Soðið við hægan hita. Soðið er jafnað með hveitijafningi. Kryddað. Raðað á fat. Borðað með soðnum kartöflum og hráu salati.
Ath. Þannig má búa til buff úr hvaða kjöti sem er. Folaldakjöt þarf 20 mín. suðu. Hrossakjött þarf lengri suðu. Það fer eftir því af hvað gömlu kjötið er.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.