1/2 l áfir eða súrmjólk
175 g hveiti
1 l sjóðandi mjólk
1/2 msk salt
Áfunum er hrært smátt og smátt út í hveitið í potti, meðan þær eru kaldar. Potturinn látinn yfir eld og hrært í honum, þar til sýður. Þá er heitu mjólkinni hrært smátt og smátt út í og grauturinn saltaður. Kanill og sykur er borinn með og annaðhvort mjólk eða saftblanda.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.