tradisjoner og tradisjonsmat
 Hjem
Sekk utan botn er sein å fylla.       
Gå nederst på siden




















OPPSKRIFT

Lagt inn den 23.05.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
Print ut oppskriften Send denne oppskriften til en bekjent
Einirberjavín


Taka skal 1/2 pott af nýjum og góðum einirberjum, steyta þau og láta saman við þau 1/4 pd. af stórum rúsínum, sem áður hafa legið í vatni þangað til þær eru orðnar vel bólgnar; Síðan er öllu þessu hellt í lítinn, hreinan poka úr netludúk eða smágjörðu vaðmáli, sem áður hefur verið látið sjóða í vatni með dálitlu af víni saman við til þess, að ekkert annarlegt bragð komi af honum. Því næst binda menn fyrir ofan pokann og hengja hann í stóra krukku, sem hella skal í 4 pottum af gamalvíni og setja saman við 1/2 pd. af steyttu hvítu sykri. Að því búnu skal byrgja krukkurnar vel að ofan og láta hana svo standa í 10-12 daga. Að þeim tíma liðnum er þessu hellt á flöskur, og skal þess þá gætt að tapparnir séu góðir.

(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)

Antall treff: 2893
Flere oppskrifter fra denne kategorien

Søk i over 200 norske nyhetskilder hos Kvasir.

Besøk ABC Matoppskrifter
Valid HTML 4.01! © Magnús Þór Magnússon 2002 - 2005 Gå øverst på siden