Lagt inn den 23.05.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Fjallagrasaeggjamjólk
40 gr fjallagrös, 2 matsk. sykur, 2 dl. vatn, 1 1/2 l. mjólk, 1-2 egg, 1/2 mastk. sykur, 1 tesk. kartöflumjöl, vanilla.
Grösin eru þvegin úr köldu vatni, sjóðandi vatni hellt yfir þau, tekin upp úr og þerruð í línklút og söxuð fremur gróft. 2 matsk. sykur eru brúnaðar á pönnu. Í það eru grösin látin og brúnað, þar til er það er vel jafn og byrjað að koma hvít froða. Þá eru 2 dl. af sjóðandi vatni látnir á pönnuna og soðið í 2 mín. Hellt í pottinn, sem heit mjólk er í og soðið í 2-3 mín.
Eggin, sykurinn og kartöflumjöl er þeytt vel í súpuskálinni. Séu notaðir vanilludropar, eru þeir settir þar í, en sé notið vanillustöng, er hún soðið í mjólkinni. Grasamjólkinni er nú hellt smátt og smátt út í eggin í súpuskálinni. Með þessu má borða tvíbökur en ég tel það óþarfa.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|